Kosningakaffi og kosningavaka VG á Húsavík

Kosningakaffi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Húsavík verður í Hvalasafninu frá kl. 10-18. Steingrímur J. Sigfússon verður á staðnum kl. 17.

Kosningavaka verður á sama stað frá kl. 22.


"Sigur" málþófsins er að snúast upp í ósigur sjáLfstæðisFLokksins

Þegar FLokkur þæfir mál
þessi verðlaun hlýtur:
Fylgið hrynur, fuðrar bál
þá FLokkur á sig skítur.

x V


mbl.is Stefnir í sigur „málþófsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þarf að koma íhaLdsFLokknum niður í einn og helst engan

Könnunin í Reykjavík norður lofar góðu en betur má ef duga skal. Framsókn er úti eins og hún á skilið en nú þarf bankahruns- og styrkjaFLokkurinn bara að halda áfram málþófi gegn lýðræði í nokkra daga í viðbót til að detta niður í 1 og helst ekki neinn þingmann í kjördæminu.
Varðandi Borgarahreyfinguna, þá verð ég að segja að ég vil frekar sjá hana ná inn manni en bæði framsókn og svokallaða frjálslynda. Fyrir utan framsóknarmanninn sem þeir þurftu endilega að setja í 1. sætið eftir að hann náði því ekki hjá framsókn.

x V


mbl.is Samfylking stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍhaLdsFLokkurinn vogar sér að halda áfram málþófi gegn lýðræðinu.

Þeir ætla seint að láta sér segjast, þingmenn bankahruns-, kreppu- og stórstyrkjaflokksins.
Þjóðin vill stjórnlagaþing, íhaldið ekki. Björn Bjarnason gengur jafnvel svo langt að halda því fram að Alþingi eitt hafi vald til að setja þjóðinni stjórnarskrá þó að það komi hvergi fram í núverandi stjórnarskrá.
Þjóðin vill einfalda framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, t.a.m. um stjórnarskrárbreytingar. Það vill íhaldið ekki, enda á móti auknu lýðræði.
Þjóðin vill auka vægi persónukjörs i kosningum. Það vill íhaldið ekki með styrkjakónga og kreppuábyrgðarmenn af ýmsum gerðum í efstu sætum um land allt.

Þessi FLokkur er á móti öllum góðum málum.

x - V


mbl.is Stefnir í næturfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týnd er æra ...

Guðlaugur öskraði "eninga"
og ábyrgur Haarde kvað "meninga".
Bjarni tví- Ben. -sté
og Björn sagði "hvaðrske?
Okkar heiður kostar mun meiri peninga!"

x V


mbl.is Heiður Sjálfstæðisflokksins ekki metinn til fjár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tilefni dagsins

Hér eru tvær vísur úr Ésúrímum eftir Tryggva Magnússon, sem teiknaði Spegilinn upp úr miðri síðustu öld, skráðar af Helga Hóseassyni eftir minni.

Öll veit borgin atburð þann,
eyðið sorg og voli.
Árla morguns upp reis hann
eins og Þorgeirsboli.

Skelkur flaug í sálarsvið,
sérhver taug var fangin.
Ekki er spaug að eiga við
allan draugaganginn.

Hér er dýrt kveðið með innrími en slíkar ferskeytlur eru oft nefndar hringhendur.


Setjum íhaldið í einangrun og sóttkví

Helvítis fokking fokkurinn
færði í kreppu okkur inn.
Andskotans árans FL-okkurinn
atkvæði fær ei nokkur inn

xV


mbl.is Hætta á einangrun Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleiðing fasískrar stefnu í málefnum útlendinga

Þegar Ólafur forseti stöðvaði umdeild fjölmiðlalög þótti mér að þar hefði hann slegið vindhögg þar sem önnur lög og verri voru að fara í gegnum þingið á sama tíma: Hin fasísku útlendingalög þáverandi ríkisstjórnar. Sú staða, sem hinn ungi Íraki er í er bein afleiðing þessara ómannúðlegu laga.
Þessi lög verður að afnema eða a.m.k. breyta mjög mikið, það mikið að það er alveg eins gott að semja ný lög um málefni útlendinga. Þetta verk bíður næstu ríkisstjórnar og þolir ekki lengri bið.

x V


mbl.is Mannréttindi innantómt tal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkarnir eyða allt of miklu í glamúr kosningabaráttunnar.

Tölurnar um tap og neikvætt eigið fé flokkanna, þ.m.t. míns flokks, sýna svo ekki verður um villst að kosningabaráttan er orðin allt of dýr, enda snýst húnn allt of mikið um auglýsingar á mönnum og slagorðum en minna um pólitíska málefnaumræðu. Þetta verður að breytast og ég hef grun um að eftir bankahrunið og stóraukinn áhuga almennings á stjórnmálum í kjölfarið muni glamúraðferðir ekki skila sér í atkvæðum. Ég bendi á að VG bannaði frambjóðendum í forvali flokksins í ár að eyða fé í auglýsingar.

x - V


mbl.is Flokkarnir skulda hálfan milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngum hreint til verks ...

... og tökum engar ákvarðanir.

FL-okkurinn


mbl.is Framhaldið í höndum formannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband