Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Er ekki hægt að leggja viðskiptaráð niður?

Viðskiptaráð ræðst á Ríkisútvarpið fyrir hönd baugsmiðlanna. Jafnvel þó að bæði auglýsendur og auglýsingarstofur hafi lagst gegn niðurskurði auglýsinga í RÚV. Er ekki hægt að setja neyðarlög gegn viðskiptaráði - nú, eða senda það til ESB?
mbl.is Frestun frumvarps um RÚV misráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afbökun á gömlum húsgangi

Í kirkjudeildum er klerkaþys,
kristí sögu að laga.
Hræsnisdruslur helvítis
hanga þar á snaga.
mbl.is María Magdalena veldur áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síonasisminn er samur við sig.

Það kaldhæðnislega við síonismann er að hann er skilgetið afkvæmi fasismans. Ein grein þeirrar birtingarmyndar hins óhefta kapítalisma er nasisminn eins og við þekkjum hann frá Þýskalandi millistríðsáranna. Þar var stunduð útrýmingarstefna á hendur Gyðingum - nákvæmlega eins og síonistar stunda nú gegn Palestínuaröbum. Það er eins og Roger Waters sagði í laginu "Perfect Sense, part 1": "And the Germans killed the Jews and the Jews killed the Arabs and the Arabs killed the hostages and that is the news".
mbl.is Ísraelar leita stuðnings við hernað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetrarsólhvörf

- en EKKI vetrarsólstöður - eru í dag. Tilefni ljóshátíðar norrænna þjóða - þar til kristnin stal af þeim jólunum. Til eru nokkrar kenningar um uppruna stórrar hátíðar í lok ársins. Ein tengist Forn-Egyptum. Þegar þeir voru að smíða tímatal sitt miðað við sólina, þá komu stjörnufræðingar þeirra sér saman um að árið hlyti að vera 360 dagar, þ.e. hinn fullkomni hringur. 5 daga skekkjan var fljót að koma í ljós og þá var 5 frídögum einfaldlega bætt við árið.

Það skyldi þó aldrei vera ...

... að mótmælin hafi einhver áhrif? Það væri nú ekki verra að losna við fleiri toppa, sem fylgdu úr gamla bankanum og vonandi verður þetta hinum bönkunum hvatning til að byrja hreinsunarstörf hjá sér.
mbl.is Innri endurskoðandi óskast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ykkur fyrir bestu svo haldið kjafti og hlýðið!

Kannast menn við rulluna? Árni Páll krataþingmaður sagði skv. fréttinni að "með ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar væri verið að tryggja hag þeirra er lakast standa".

"Ég þarf að berja aðeins á þér en það er vel meint". "Ef ég stúta þér þá er það í þína þágu". "Þetta er allt gert með ykkar hag í huga". Inntak allra ráðstafana stjórnvalda kapítalismans um allan heim á öllum tímum.


mbl.is Röng forgangsröðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og litlu hægrihjörtun hoppuðu ...

... en lentu á maganum. Allt varð vitlaust i bloggheimum í gærkvöldi þegar Þorleifi Gunnlaugssyni, borgarfulltrúa VG, "varð það á" að senda bréf áfram til fjölmiðla með samþykki bréfritara og forráðamanna. Nafn bréfritara átti að þurrka út en gleymdist. Fjölmiðlar voru ekki seinir á sér að greina frá nafnbirtingunni - en minna fór fyrir fréttum af innihaldi bréfsins - og hægri menn allt frá krötum að íhaldi hoppuðu hæð sína af gleði. Nú skyldi sá vinstri græni finna til tevatnsins. Málinu var líkt við níðbréf Bjarna Harðarsonar um flokkssystur sína og dugði ekki minna en að Þorleifur segði af sér. Og hægri menn fóru að sofa í þeirri sælu fullvissu að morgundagurinn bæri afsögn í skauti sér.
En vöknuðu upp við vondan draum! Ég held að menn hefðu átt að æsa sig aðeins minna þar til sannleikurinn kom í ljós. Þá hefðu færri gert sig að fíflum.
mbl.is Álasa ekki Þorleifi fyrir bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Remember that night

Er að horfa og hlusta á Remember that Night með David Gilmour, sem kom út í fyrra. Ekki datt mér í hug að Richard Wright yrði allur að ári. Þetta er líklega síðasta upptaka af honum á tónleikum. Hann átti eitt besta lagið á síðustu stúdíóplötu Pink Floyd, The Division Bell, lagið Wearing the Inside Out.

Davíð situr í skjóli krata.

Þegar hægri armur Alþýðubandalagsins sameinaðist Alþýðuflokknum undir nýju nafni var okkur sagt að hið nýja stjórnmálaafl væri stofnað til höfuðs Sjálfstæðisflokknum og Davíð Oddssyni, þáverandi formanni hans. Ef við miðum við árið 1998 tók það Samfylkinguna níu ár að komast í ríkisstjórn með þeim flokki, sem hún ætlaði að koma frá völdum. Þannig hefur hún viðhaldið valdatímabili íhaldsins - tímabili, sem Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og einn af arkitektunum bak við stofnun Samfylkingarinnar, hóf með Viðeyjarstjórninni 1991.
Hótun ISG til samstarfsflokksins er sennilega án fordæma. Af hverju í ósköpunum þarf hún þessa tylliástæðu til að rjúfa stjórnarsamstarfið, sem er handónýtt hvort sem er? Ríkisstjórnin er ráðalaus gagnvart kreppunni og virðist helst hugsa um að útrásarliðið sleppi frá öllu saman og alþýðan borgi brúsann eins og venjulega.
En þetta útspil krataformannsins ber auðvitað vott um þann fádæma hroka, sem þessi kona er haldin svo aðeins verður jafnað við hroka Davíðs Oddssonar gagnvart bæði þjóð og þingi.
Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist ef íhaldið velur að fara EKKI þá leið, sem ISG vill. Hvað gerir hún þá? Mér dettur ekki eitt augnablik í hug að hún standi við stóru orðin.
mbl.is Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spaugstofan sveik ekki ...

... frekar en fyrri daginn. Magnað lokaatriði, sem örugglega hneykslaði flesta trúarhræsnara þessa lands. Sem betur fer var það bara táknrænt ...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband