Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Í janúar spurði ég tveggja spurninga:
1. Tekur þú undir mótmælin á Borginni á gamlársdag 2008? 130 svöruðu og skiptust svörin nánast til helminga í já og nei.
2. Styður þú mótmæli gegn ríkisstjórninni við Alþingishúsið 13. janúar 2009? Marktækur meirihluti svaraði játandi skv. einföldu kjí-kvaðrat prófi.
Eins og í desember má hafa alla fyrirvara við gæði úrtakanna.
Stjórnmál og samfélag | 31.1.2009 | 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú segir framkvæmdastjóri kratanna að stórleikur Björgvins G. í dag hafi veitt krötunum frumkvæði í stjórn landsins! Hvaða endemis bull og vitleysa er þetta? Þýðir þetta t.d. að ef íhaldið lætur einn ráðherra fara og e.t.v. seðlabankastjóra með að þá sé staðan aftur orðin 1:1 í frumkvæðinu? Þýðir þetta að ef kratarnir halda áfram að mjatla af sér eins og einn ráðherra á dag að þá aukist þar með frumkvæði þeirra þar til þeir vinna frumkvæðiskapphlaupið þegar enginn krataráðherra er eftir í ríkisstjórninni?
Eða er maðurinn bara orðinn kexruglaður?
Samfylkingin hefur náð frumkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Segir þingmenn VG hafa veist að lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.1.2009 | 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Meiri biðlund á landsbyggðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 24.1.2009 | 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Íhaldsbloggarar keppast nú við að lýsa andúð sinni á VG og þeim vilja flokksins að ríkisstjórnin fari frá strax og kosningum verði flýtt. Þó er þeim fullljóst að meirihluti þjóðarinnar vill það sama. Hræðsluáróðurinn gegn VG er með ólíkindum miðað við að VG er eini flokkurinn fyrir utan smáflokkana, sem ekki hefur komið nálægt ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins frá 1991.
VG er eini flokkurinn, sem hefur eindregið lagst gegn og varað við þeirri einkavæðingarstefnu íhaldsins og meðreiðarflokka þess, sem leitt hefur þjóðina út í það efnahagshrun, sem hún er komin í.
VG er eini flokkurinn, sem hefur eindregið lagst gegn og varað við þeirri stóriðjustefnu íhaldsins og meðreiðarflokka þess, sem leiddi til gífurlegrar þenslu í þjóðfélaginu, sem erum apð súpa seyðið af núna, og stórkostlegra náttúruspjalla, sem enn sér ekki fyrir endann á.
VG er eini flokkurinn, sem hefur bent á að einkavæðingarstefna íhaldsins og meðreiðarflokka þess myndi leiða til stórskerðingar og verðhækkana á opinberri þjónustu við almenning, þ.e. niðurskurð á velferðarkerfinu, sem kemur alltaf betur og betur í ljós, nú síðast með útspili heilbrigðisráðherra.
VG er eini flokkurinn, sem hefur stutt uppbyggingu smárra og meðalstórra fyrirtækja og sprotafyrirtækja í stað óheftrar stórðiðju.
VG er eini flokkurinn, sem vill hverfa frá einkavæðingarstefnunni og byggja þess í stað aftur upp ódýra, opinbera þjónustu í velferðarkerfinu, svo sem ókeypis menntun og heilsugæslu.
VG er sá klettur, sem staðið hefur gegn helstefnu íhaldsins gagnvart almenningi þessa lands og hefur leitt okkur þangað sem við erum núna á meðan meðreiðarflokkar íhaldsins hafa bogna og brotnað.
VG er eini flokkurinn, sem hefur tekið heils hugar undir kröfurnar um ríkisstjórnina burt og kosningar - alveg frá því í haust.
Er nema von að íhaldinu sé órótt.
Ögmundur: Lofar ekki góðu að bíða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.1.2009 | 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það er aðeins áfangasigur að ríkisstjórnarflokkarnir hafa ákveðið að boðað verði til kosninga í vor. Krafa meginþorra þjóðarinnar er að ríkisstjórnin segi af sér - núna!
Þetta eru hins vegar hrikalegar fréttir af heilsufari Geirs. Öll þjóðin hlýtur að óska honum - og Ingibjörgu - góðs bata.
Geir: Kosið í maí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.1.2009 | 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nú keppast kratafélög um að krefjast bæði kosninga og stjórnarslita en hvorki Össur né Ingibjörg vilja híð síðarnefnda. Enn er eftir að koma í ljós hvað varaguttinn hefur til málanna að leggja í dag - ef nokkuð.
Það skyldi þó aldrei vera að krataformaðurinn vilji bara táknrænar kosningar í vor - en engin stjórnarslit, hvorki fyrir né eftir kosningar? Að kosningar verði bara formsatriði til að róa skrílinn, sem hvort sem er er ekki þjóðin.
Styðja stjórnarslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.1.2009 | 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
... en ekki stjórnarslit og gefur þar með félögum sínum í reykvíska kratafélaginu langt nef. Á meðan bullar Össur um stjórnarkreppu rétt eins og hann viti ekki að það er hægt að búa til starfsstjórn með ýmsum ráðum þar til ný stjórn tekur við völdum eftir kosningar.
Mótmælendur vilja bæði kosningar og stjórnarslit - og síðarnefnda atriðið ekki seinna en strax. Það vill hins vegar enginn stjórnarkreppu og því verður að leggja drög að starfsstjórn strax e.t.v. í samráði við forsetann, sem einn getur skipað utanþingsstjórn.
En burtséð frá því hvernig starfsstjórn verður skipuð, þá þýðir ekki að ætla að bjóða fólki upp á sömu ríkisstjórn áfram í marga mánuði í viðbót. Það er ávísun á frekari og magnaðri mótmæli. Afstaða formannsins er enn eitt dæmið um þann hroka og yfirgang, sem ISG sýnir þjóðinni og nú einnig flokkfélögum sínum.
Ingibjörg vill kosningar í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.1.2009 | 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Humm. Það virðist sem ég þurfi að éta ofan í mig mína hógværu spá í fyrri bloggum í dag um að kratar myndu éta ofan í sig stóru orðin síðan í dag.
En ég ætla samt að bíða með það þar til formaðurinn hefur talað við sína undirkrata. Verði þetta hins vegar niðurstaðan verður mín hógværa spá kokgleypt með ánægju.
Ég ítreka enn fremur þá skoðun mína að ef til stjórnarslita kemur fer best á því að forseti skipi utanþingsstjórn þar til ný stjórn verður mynduð að loknum kosningum. Og að sjálfsögðu verður að kjósa til stjórnlagaþings, þar sem þjóðin setur sér nýja stjórnarskrá. Það má ekki gleymast.
Samþykktu ályktun um stjórnarslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.1.2009 | 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Stjórnmál og samfélag | 21.1.2009 | 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Spurt er
Færsluflokkar
Eldri færslur
Bloggvinir
- ak72
- annabjo
- annaeinars
- apalsson
- aring
- arnith
- birgitta
- bjarkey
- danjensen
- diesel
- einarolafsson
- gurrihar
- hallormur
- hehau
- helgatho
- hjorleifurg
- hilmardui
- hlynurh
- ingolfurasgeirjohannesson
- jenfo
- jennystefania
- jensgud
- joiragnars
- jonbjarnason
- jonsnae
- kreppan
- kreppukallinn
- ktomm
- larahanna
- little-miss-silly
- olafur-thor
- olofdebont
- runarsv
- runirokk
- sailor
- skessa
- skulablogg
- slembra
- stjaniloga
- thj41
- undirborginni
- vefritid
- vilhjalmurarnason
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar